ÁGÚSTA MALMQUIST ARTIST

Ágústa Malmquist er fædd á Akureyri árið 1970. Myndlistakona og grafískur hönnuður útskrifuð frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1995 og hefur unnið að myndlist allar götur síðan. Hún vinnur í margskonar efni. Ágústa hefur meðal annars fengist mikið við grafík eins og ætingu, einþrykk og annað djúpþrykk. Einnig vinnur hún með blýant, blek, vatnsliti, klippimyndir og saumar í pappír. Hún rak sitt eigið sölugallerí frá 2009-2020, þar sem myndlist hennar var til sölu. Í dag er hún með vinnustofuna heima við.

 

INNLIT Á VINNUSTOFU

 

  • Vinnustofuheimsóknir

 

  • Panta þarf tíma

 

  • Best er að hafa samband í tölvupósti